Spitsign


Reviews FAQ Spitlinks Lyrics Pictures Sounds News About the band

Hvað, hvernig, hverjir og hversvegna



Bóas = Söngur
Bjarni = Gítar
Bjössi = Trommur
Ívar = Bassi


[In English]

Spitsign var stofnuð árið 1996, úr 2 mosfellskum böndum. Úr Paranormal komu Bjössi, Bóas og Þórður Illugi (fyrsti bassaleikari Spitsign), en Bjarni kom úr bandinu Mother Glory. Til að byrja með var auðvitað bara samið og samið þar til að ákveðið var að taka þátt í músíktilraunum ´97. 3 lög voru tekin upp í stúdíói fyrir tilraunirnar, Fuckup, Physicalmindrape og P.U.M.A.

Aacute; músíktilraunum gekk svo mjög vel, og á fyrsta kvöldinu sigraði Spitsign og komst því í úrslit (eina bandið með enska texta til að komast áfram, Árna Matt til mikillar gremju, (held ég) fyrir utan kannski Outrage sem höfðu enga texta). Í úrslitunum gekk ágætlega og þó svo að engin verðlaun væru unnin, þá skapaði sveitin sér nafn þar í fyrsta skipti, og fékk fína gagnrýni dagblaðanna.

Fljótlega eftir músíktilraunir hætti Þórður Illugi í Spitsign og sneri sér að öðru. Lengi var leitað að bassaleikara og meira að segja var eitt gigg tekið sem tríó. Það var í Hinu húsinu ásamt Soðinni fiðlu, fyrir fullu húsi. Þetta voru þar að auki í fyrsta sinn sem að Smári, sem var þá trommari Subterranean, sá spitsign live og gaf sig á tal við Bjarna eftir giggið og lýsti aðdáun sinni á bandinu. Hann kom síðan inní bandið sem gítarleikari í Janúar 1998.
Seinna kom Höddi til sögunnar og stóð sig vel í þann stutta tíma sem hann spilaði með Spitsign og tók upp eitt demo og samdi m.a. 40´s og A.K.A. með bandinu.

Eftir það hófst aftur leit að bassaleikara, sem stóð nokkuð lengi. Að lokum fengu þeir lánaðann bassaleikarann Ívar úr Gundog a.k.a. Ungblóð a.k.a. FISK og spilar hann ennþá með og gerir það vonandi héðan í frá, enda löngu orðinn fullgildur meðlimur hljómsveitarinnar og rúmlega það! Eftir komu Ívars í bandið hefur allt gengið frábærlega, og tæpir 40 tónleikar hafa verið spilaðir m.a í Keflavík og Húsavík og vonandi verða fleiri tónleikar haldnir úti á landi á næstunni. Eitt lag hefur verið í nokkurri spilun í útvarpi, Bullseye og bandið hefur náð sér í umboðsmann, Mána Babýlon og hefur hann hjálpað mikið til. Stærstu tónleikar Spitsign held ég að séu Ham tribute tónleikar í Þjóðleikhúskjallaranum, tveir stórir tónleikar í Tunglinu fyrir Plómuna og Visa, og að sjálfsögðu Popp í Reykjavík

Spitsign spila í Undirheimum FB í september 1998, mikið af fólki mætir á tóleikana og það mikið um slamm, frábærir tónleikar.

Smári hættir í spitsign eftir 6 mánaða veru í bandinu, stuttu seinna í október hættir Bóas söngavari. Hljómsveitin lagði þá upp laupana.

Bjössi og Bjarni eru í dag í hljómsveitinni Mínus.
Bóas er söngvari Vígspá
Ívar var í mínus en er nú hættur
Smári var í Quarashi en er nú hættur.



Main Page- Band- News- Media- Gallery - links- Faq- Review - lyrics