Nýlega kom saman hópur fólks og lagði drög að stofnun samtaka gegn kynþáttahatri. Undanfarin ár hefur rasismi orðið æ sýnilegri á meginlandi Evrópu, til að mynda í Austurríki þar sem Þjóðarflokkurinn er í ríkis-stjórn; og í Skandinavíu þar sem skipulögð samtök kynþáttahatara hafa orðið sífellt meira áberandi. Ísland er hér engin undantekning. Samtök íslenskra þjóðernissinna hafa verið stöðugt meira í umræðunni. Hingað til hefur boðskapur þeirra mætt litlu andsvari á þeim forsendum að yfirlýsingar þeirra beri ekki að taka alvarlega. Í ljósi sögunnar og einnig ef litið er til þróunar rasískra samtaka erlendis í dag, er ljóst að alþýðu manna stendur veruleg ógn af þess konar hatursáróðri sem slík samtök hafa í frammi. Samtök íslenskra þjóðernissinna eru ekki friðsöm samtök ættjarðarelskenda, heldur samtök kynþáttahatara sem standa fyrir beinum árásum, í ræðu og riti, á þá íbúa landsins sem eru af erlendu bergi brotnir. Slíkar árásir ber að taka alvarlega og því er nauðsynlegt að andsæðingar kynþáttahaturs taki höndum saman gegn rasisma og berjist fyrir því að allir íbúar landsins njóti jafns réttar og jafnrar virðingar, hvaðan sem þeir eru upprunnir og hver svo sem hörundslitur þeirra er.
Undirbúningshópurinn