Smelltu hér til að hlusta á Hryjanda!

Viðtal við Bandarísku hljómsveitina Mars Volta

Viðtal við Bandarísku hljómsveitina Blacklisted

Viðtal við söngvara hljómsveitarinnar A Life Once Lost.

Tónleikar á næstunni:

útgáfu tónleikar Gone Postal
10. janúar 2009 (laugardagur)
Hvar:Tþm hólmaslóð 2 Hvenær:10. janúar Klukkan hvað: 19:00 Hvað kostar: 1000 Aldurtakmark: 5 Annað:bring ... [meira]

Gone Postal
Severed Crotch
Swords of Chaos
Embrace the plague


The Black Dahlia Murder
15. janúar 2009 (fimmtudagur)
Hvar: Dillon Sportbar, Trönuhrauni 10, 220 Hafnarfjörður Hvenær: Fimmtudagskvöldið 15. janúar 2009 Klukkan ... [meira]

THE BLACK DAHLIA MURDER (USA) - www.myspace.com/blackdahliamurder
Severed Crotch - www.myspace.com/severedcrotch
Celestine - www.myspace.com/celestinemusic
Palmprint In Blood - www.myspace.com/palmprintinblood
Wistaria - www.myspace.com/wistariatheband
Beneath - www.myspace.com/beneathdeathmetal


D.A.D á NASA
24. janúar 2009 (laugardagur)
Nánari upplýsingar síðar.

D.A.D.




Taflan.org

Fróðleikur
Human Waste Project
Fyrrum söngkona Human Waste Project og núverandi söngkona theSTART, Aimee Echo söng á plötunni "One Hot Minute" með Red Hot Chili Peppers.


Mynd dagsins
 
20
 
Add New Senda inn fréttaskot
   Erlent    Innlent    Annað    Uppfærslur

5. janúar 2009 mán. | Valli
Tois eða Isol
Nýlega komu þær upplýsingar fram á heimasíðu hljómsveitarinnar Tool að enn meðlimur sveitarinnar verði væntanlega gestur á tilvonandi hljómplötu sveitarinnar ISIS. Þetta ætti væntanlega að gleðja marga en um leið vonar maður bara að platan verði betri en sú seinasta.
theprp.com

5. janúar 2009 mán. | Valli
Í hvert skipti sem ég dey
Á tónleikum hljómsveitarinnar Every Time I Die komu fram þær upplýsingar að sveitin muni gefa út næsta breiðskífu á Epitaph útgáfunni. Vænta má fréttatilkynningar frá bæði sveit og útgáfu á næstu vikum.
theprp.com

5. janúar 2009 mán. | Valli
Madfront
Hljómsveitirnar Agnostic Front og Madball halda saman í rómantíska tónleikaferð um suður Ameríku seinna á þessu ári. Sveitirnar ætla í kjölfarið að gefa út split disk þar sem aðeins verða lög sungin (já eða öskruð) á spænsku. si. Ferðalag þetta verður væntanlega haldið í októbermánuði.
theprp.com

3. janúar 2009 lau. | Valli
Soulfly
Hljómsveitin Soulfly heldur til evrópu í mars mánuði og heldur í kjölfarið heilan halling af tónleikum á meginlandinu. Ásamt Soulfly verður bandaríska hljómsveitin Incite, en til að kynna asér þá sveit nánar er hægt að smella hér: www.myspace.com/incite1
theprp.com

3. janúar 2009 lau. | Valli
Heiress
Fyrrum meðlimir hljómsveitarinnar Himsa eru komnir saman í hljómsveitinni Heiress. Hægt er að kynna sér bandið nánar á mæspeisi sveitarinnar hérna: www.myspace.com/anheiress
theprp.com

3. janúar 2009 lau. | Valli
Freyja
Hljómsveitin Freyja hefur ákveðið að nýja plata sveitarinnar beri nafnið All Hail the End, en hægt er að hlusta á demo af laginu The Iron Locust. (Hérna: www.myspace.com/freya )
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Uppfræsla á harðkjarna
Fullt af nýjum plötudómum komnir á síðuna í viðbót við uppfærslu á tónleikasíðunni.

Nýlega var bætt við nýjum plötudómum, þar á meðal:
Shogun - Charm City
Scott Kelly - The Wake
Entombed - Uprising
Cavalera Conspiracy - Inflikted
Burning skies - Greed.Filth.Abuse.Corruption
Plastic Gods - Quadriplegiac

Ég uppfærði einnig tónleikasíðuna og ný býðst tónleikahöldurum að bæta við smá upplýsingum á síðuna fyrir enskumælandi fólk. Ástæðan fyrir því er að ég hef fengið nokkuð af fyrirspurnum frá fólki sem hefur áhuga að mæta á íslenska þungarokks tónleika, en skilur ekkert af þeim upplýsingum sem koma fram á harðkjarna siðunni, þetta hjálpar þeim að einhvejru leiti og vonast ég til að tónleikahaldarar fylli út nánari upplýsingar um tónleikana þá sem þeir halda.

dordingull.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Caliban
Hetjur nýrokks heimsins, þýska sveitin Caliban, hefur ákveðið að tilvonandi breiðskífa sín beri nafnið "Say Hello To Tragedy". Nú þegar hefur sveitin samið 12 ný lög og styttist óðum í upptökur á efninu.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Rokkstjörnur
Sögusagnir eru um að hljómsveitirnar Marilyn Manson, Slayer og Trivium fari saman í tónleikaferðalag að nafni "Rockstar Energy Mayhem Festival". Fleiri hljómsveitir hafa verið tilkynntar, þar á meðal Behemoth og Cannibal Corpse, en Cannibal Corpse munu vera aðal bandið á "Extreme Metal" sviði ferðalagsins.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
KáBoj
Svo virðist vera að hljómsveitin Job For A Cowboy sé núþegar búin að ráða nýjan kúreka í starf gítarleikarans Ravi Bhadriraju. Sá nýji ber nafnið Al Glassman og var áður í hljómsveitinni Despised Icon. Von er á því að sveitin haldi í hljóðver í febrúar á næsta ári til að hefja upptökur á nýju efni.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Vélhaus
Gítarleikari hljómsveitarinnar Machine Head, Phil Demmel, féll niður á tónleikum sveitarinnar á laugardaginn. Kauði virðist eiga í einhverjum vandamálum með óreglulegan hjartslátt, eitthvað sem hægir það mikið á hjartanu að ekki nóg flæði er í kappanum. Hljómsveitin heldur áfram tónleikaferðalagi sínu þrátt fyrir þetta.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Himin og Hel
Hljóðfæraleikarar hljómsveitarinnar Black Sabbath í viðbót við fyrrum söngvara sveitarinnar, Ronnie James Dio, eru langt komnir með upptökur fyrir sína næstu plötu. Sveitin, sem gengur undir nafninu Heaven and Hell, áætlar að nýtt efni verði gefið út snemma árið 2009.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Hark
Hljómsveitin Turmoil virðist hafa fundið söngvara til að taka við hlutverki Jon Gula, sem nýverið ákvað að yfirgefa bandið. Nýji gaurinn heitir Nate Johnson og hefur komið víða við, þar á meðal í hljómsveitum á borð við Through the Eyes of the Dead, Premonitions of War, The_Network, Burnt by the Sun, Fit for an Autopsy, Since the Flood og Deadwater Drowning. Það verður spennandi að heyra hvernig honum tekst að takast á við þetta hlutverk.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Houston this is earth, we have a problem....
Straight Edge Vegan krúttin í hljómsveitinni Earth Crisis hafa ákveðið að tilvonandi plata sveitarinnar beri nafnið "To The Death", en von er á plötunni á næsta ári. Það er Century Media útgáfan sem gefur út plötu sveitarinnar að þessu sinni.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
My Precious..
Hljómsveitin Most Precious Blood hyggist gefa út nýja breiðskífu í mars mánuði á næsta ári. Plata þessi hefur fengið nafnið "Do Not Resuscitate" og verður gefin út af Trustkill.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Logar
Von er á endurútgáfum með hljómsveitinni In Flames í byrjun næsta árs, en það er Regain Records útgáfan sem stendur að þessum útgáfum. Báðar plöturnar eru endurhljóðblandaðar og verður pakkað í digipack hlustur. Að sjálfsögðu er von á fullt af aukaefni á þessum útgáfum.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Hasshausar
Hljómsveitin High On Fire hafa skrifað undir útgáfusamning við Koch Records. Fyrrum útgáfa sveitarinnar ætlar sér að gefa út tónleikaupptökur með sveitinni í byrjun næsta árs að nafni:"Live From The Relapse Contamination Festival", en á disknum verður að finna 8 lög, þar á meðal ábreiðu af Venom slagaranum "Witching hour".
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Far
Hljómsveitin Far er komin saman á fullt og mun spila á tónleikum 15. janúar næstkomandi. Tónleikarnir verða haldnir í Sacramento, Kaliforníu, nánartiltekið í salarkynnum Empire.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Atvinnulaus kúreki
Hljómsveitin Job For A Cowboy hefur nú staðfest atvinnuleysi gítarleikarans Ravi Bhadriraju, en drengurinn var nýlega fjarlægður af meðlima lista sveitarinnar á mæspeis, þetta fylgir sögusögnum um að sveitin hafi sagt skilið við drenginn.. Hvort að þeir leiti að öðrum manni í þessa stöðu verður að koma í ljós en það verður væntalega ekki auglýst í sunnudagsmogganum.
theprp.com

15. desember 2008 mán. | Valli
Henda niður?
Straight edge metalcore sveitin Throwdon hefur skrifað undir útgáfusamning við útgáfufyrirtækið Koch Recrecords. Von er á því að hljómsveitin gefi út næstu plötu sína með aðstoðútgáfunnar, en plata þessi mun bera nafnið Deathless.
theprp.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Arkitektar
Breska hljómsveitin Architects skellti nýverið laginu "Numbers Count For Nothing" á mæspeisið sitt. Von er á nýrri plötu frá sveitinni snemma í febrúarmánuði, og verður hún gefin út af Century Media útgáfunni. Fyrrnefnt lag er hægt að nálgast hér: www.myspace.com/architectsuk
theprp.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Flótta áætlun herra Herberts
Hljómsveitin The Dillinger Escape Plan áætlar að hún eyði hluta af bæði júní og júlí á næsta ári í upptökur á nýju efni. Sveitin hefur pantað tíma hjá Steve Evetts (Every Time I Die, Sepultura) og er því vonin að hann nái að pródúsera efni sveitarinnar á þessum tíma.
theprp.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Brunnaeitur
Folarnir í hljómsveitinni Poison the well skelltu nýverið myndbandu á jútúb, það er svosum ekkert merkilegt en myndband þetta inniheldur meðal annars myndefni frá upptökuferli sveitarinnar á tilvonandi beiðskífu. Skífa þessi verður gefin út í maí á nsæta ári og verður það Steve Evetts(sá sami og í fréttinni hér að ofan) sem mun pródúsera gripinn. Umtalað myndband er hægt að finna hér: www.youtube.com/watch?v=po2dX5z7usI
theprp.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Grafræningjarnir
Hægt er að hlusta á tvö ný lög hljómsveitarinnar Sepultura á mæspeis síðu sveitarinnar. Lögin sem hér um ræðir verða að finna á tilvonandi breiðskífu sveitarinnar, A-Lex, en skífa þessi verður gefin út í lok janúar mánaðar á næsta ári. Hægt er að hlusta á lögin "The Treatment" og "We've Lost You" hér: www.myspace.com/sepultura
theprp.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Hinir endurbyggðu
Hljómsveitin Rebuilt bjóða nú aðdéndum harðkjarna tónlistar að hlusta á sitt nýjasta efni á netinu. Sveitin, sem rekur ættir sínar til Washington fylkus, gefur úti efni sit á Silly Girl útgáfunni, en umtalað efni er hægt að nálgast hér: www.myspace.com/nwrebuilt
waytooloud.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Slagur!!!
Hægt er að hlusta á lagið "Christmas Ride" með hljómsveitinni Fight (Rob Halford) á heimasíðu kappans www.HalfordMusic.com Á síðunni er í framhaldi hægt að nálgast allt efnið kappans undir nafniu Fight og Halford. Lagið sem hér um ræðir var upprunalega gefið út á smákífu árið 1994.
waytooloud.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Djöflarokk
Söngvari hljómsveitarinnar Sepultura, Derrick RISI Green hefur ásamt félögum símnum í hljómsveitunum Niotrominds og Dead Fish stofnað hljómsveitina Musica Diablo. Hægt er að hlusta á upptökur frá sveitinni hérna: www.myspace.com/musicadiablo
waytooloud.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Andlitsleysi
Hljhómsveitin Nothingface er að vinna að nýju efni og vonast sveitin til að koma aðdáendum sínum á óvart snemma á næsta ári. Hægt er að kynna sér bandið á mæspeisinu þeirra: www.myspace.com/nothingface1
waytooloud.com

4. desember 2008 fim. | Valli
Lífseyðileggjarinn
Hljómsveitin Liferuiner lagði upp laupana ekki alls fyrir löngu og nú nokkrum vikum síðar er sveitin komin saman á ný. Sveitin er í hljóðveri og ætlar að gefa út efni snemma á næsta ári með aðstoð Uprising útgáfunnar. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til bandins þá er þetta straight edge band sem hentar vel aðdáendum sveita á borð við Hatebreed, Emmure og Bury Your Dead. www.myspace.com/xlifexruinerx
waytooloud.com

1. desember 2008 mán. | Valli
Faith no More
Hugsanleg endurkoma hljómsveitarinnar Faith No More hefur verið umfjöllunarefni rokk tímaritsins Kerrang nýverið. Blaðið heldur því fram að hafa fengið nokkuð áræðanlegar fréttir um að þetta sé í vinnslu og planið sé að sveitin komi saman á næsta ári teki festival túr í viðbót nokkra vel valda tónleika um allan heim. Bill Gould bassaleikari sveitarinnar sagði frá því að hafa ekki talað við neinn af fyrrum meðlimum sveitarinnar í meira en ár og að ef eitthvað væri að fara að gerast hjá bandinu þá myndi það væntalega fréttast frá hljómsveitarmeðlimum sjálfum.
blabbermouth.net

Fréttir 1 - 30 af 1976
[Eldri fréttir]